|

Aðsent efni: J.Ó
9.10.2005
Moore kominn á skrið Ástralinn Craig Moore hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu síðan hann kom á SJP enda hefur hann átt við meiðsli að stríða. Um helgina var birt viðtal við Moore sem Neil Farrington hjá The Sunday Sun tók. Hér birtast glefsur úr því en Moore hefur frá ýmsu að segja. Til dæmis baráttunni við það að vera sagður hafa mætt fullur á æfingu með Borussia Mönchengladbach í Þýskalandi.
Það eru aðeins nokkrir mánuðir síðan að Moore óttaðist að ferillinn væri á enda eftir að hann var rekinn frá Mönchengladbach fyrir að mæta fullur á æfingu. Það var erfitt fyrir hann að verja sig því stjórnarmaður félagsins fullyrti að svona hefði þetta verið. Og þrátt fyrir að stjórnarmaður Gladbach drægi þetta til baka í samtölum þeirra var vandinn hreint ekki úr sögunni. Hann ræddi við nokkra áhugasama stjóra en allir vildu ræða um drykkjuna. „Fyrsta spurningin sem þeir spurðu var hvort ég ætti við drykkjuvanda að stríða, ekki hve marga leiki ég hefði spilað síðustu sex mánuðina. Þetta var leiðinlegt. Ég varð að útskýra mál mitt fyrir öllum sem höfðu áhuga og eins fyrir landsliði Ástrala. Ég varð að hringja margoft og þetta var mjög asnaleg staða sem ég var kominn í,“ segir Craig.
Stjórnarmaðurinn Peter Pander var sá sem kom málinu af stað. Hann sagði þetta: „Ég get ekki sætt mig við það sem Craig gerði. Við höfum rift samningi hans vegna þessa.“ Craig segir þá hafa uppdiktað söguna vegna ágreinings. „Ég hafði ekki spilað síðustu tvo leikina fyrir Borussia. Álfukeppnin var framundan hjá Ástralíu og við vorum ekki með frí fyrir hana. Ég talaði því við stjórnarmennina og sagði að ég væri ekki að fara að spila og þeir væru með ungan strák á bekknum, ég vildi fá að komast í burtu. Þeir sögðu að ef ég færi snemma myndu þeir rifta samningnum. En það var í lagi mín vegna því það var bara einn leikur eftir. Það þýddi bara að ég fengi ekki borgað fyrir júní. Ég sagði því að það væri ekkert mál. Ég var ánægður og þar með var þetta klappað og klárt. En þremur dögum síðar les ég fréttir sem eru mikið sjokk fyrir mig. Þegar ég horfi á þetta eftir á þá fór það svo að í lokaleiknum var liðið að vinna 1-0, miðvörðurinn meiddist og það var enginn til að taka við stöðunni og þeir töpuðu 5-1 svo menn hafa farið að spyrja spurninga.”
Moore segir að þegar hann hafi spurt Borussia menn út í málið hafi þeir ávallt neitað að hafa komið sögunni á kreik. Hann segir einnig að Pander hafi sagt að orð sín hafi verið rifin úr samhengi. Moore segir svo að þegar hann hafi fengið samning hjá Newcastle hafi hann bara viljað halda áfram og gleyma þessum leiðindum.
Graeme Souness þekkti til Moore og vissi hvaða karakter hann hefði að geyma. „Ég var lengi hjá Rangers og hafði alltaf verið hrifinn af úrvalsdeildinni. Ég elskaði lífið á Ibrox. Ég var með í frábærum liðum þar. En maður þarf að breyta til. Mér finnst eins og ég verði að spreyta mig í annarri deild núna. Minningarnar frá Glasgow verða alltaf góðar en Skotland býður ekki upp á sömu keppni og er vikulega í úrvalsdeildinni. Og eftir sex mánuði í Þýskalandi þá áttaði ég mig á að ég vildi ekki vera þar lengi. Borussia bauð mér alveg frábæran samning til tveggja ára í viðbót og svo möguleika á þriðja árinu. En fjölskylda mín var enn í Skotlandi þó við værum að reyna að fá börnin yfir og koma þeim í alþjóðlegan skóla þá fannst mér bara ekki að ég yrði ánægður þarna síðustu tvö eða þrjú ár ferilsins. Og ef maður er ánægður utan vallar þá gefur þú svo miklu meira inni á vellinum. Þetta átti því ekki að verða minn staður.“
Craig segist ekki kominn til Newcastle til að vera á bekknum. Það kann þó að verða erfitt að komast að því hann er talinn fjórði miðvöðurinn inn í liðið. Þá hefur Moore hug á að verða með á HM næsta sumar. „Newcastle hefði keypt rangan mann ef ég væri ánægður með að vera bara í hópnum. Ætlun mín er að vinna mér sæti og spila eins marga leiki og ég get. Fólk mun segja að það séu fjórir miðverðir hér en ég vil gefa stjóranum hausverk. Allir stóru klúbbarnir hafa samkeppni um stöður. Það dregur það besta fram hjá leikmönnunum að vita að það er einhver annar sem getur komið og tekið stöðu hans. Það er heilbrigt. Það er óheppilegt að við séum ekki með þetta svona í hverri einustu stöðu því við myndum elska það.“
Moore hefur verið með í yfir 20 grannaleikjum Rangers og Celtic. Hann hefði sannarlega ekki neitt á móti því að fá að spreyta sig gegn Sunderland þann 23. október. „Derbyleikir eru alltaf mjög sérstakir, hvar svo sem þeir eru og ég hef heyrt mikið um það frá fólki innan klúbbsins og áhangendum að þessi sé frekar krassandi. Leikir Rangers og Celtic eru auðvitað afar sérstakir en það eru aðrar ástæður fyrir því. Hver svo sem bakgrunnurinn er þá eru þetta leikirnir sem allir vilja vinna.“
12. og 16. nóvember leikur Ástralía við liðið sem verður í 5. sæti Suður Ameríkukeppninnar og þá verður slegist um sæti í Þýskalandi. Líklega verður Úrúgvæ mótherjinn rétt eins og fyrir HM 2002. Moore spilaði báða leikina árið 2001 og hann segir Úrúgvæ líklega erfiðasta liðið sem þeir hefðu getað fengið. Hann segir það einfalda staðreyna að Suður Ameríkumennirnir hafi verið mun betri í leikjunum en vonandi takist nú að sigra í næstu tilraun.
Moore segir pressuna á stjórann jafnvel meiri í Glasgow en á Tyneside. „Hér er hægt að tapa leik öðru hverju og þó að það sé ekki álitið ásættanlegt þá jafna menn sig. En Rangers VERÐUR að vinna hvern einasta leik. Ef þeir vinna ekki er það bara skandall. Ég er sammála því að ef menn eiga slæma kafla hjá Newcastle þá mun pressan verða virkilega mikil, ekki síst þar sem svo langt er síðan liðið vann bikar. En pressan á Rangers og Celtic er allt öðruvísi því þau eiga að vinna hvern einasta leik.“ |