Sent út vegna netfundar:

Heilir og sælir kæru stjórnarmenn.

            Það gengur brösulega að koma saman stjórnarfundum vegna ýmissa ástæðna. Hvað um það !

Mig langar að reyfa nokkur mál við ykkur. Það fyrsta er hvernig ykkur líst á að koma á fót fundum í gegnum netið annan hvern mánuð og við mundum hittast svo hinn mánuðinn á móti. Þetta gæti farið þannig fram að ég mundi setja upp dagskrá fundar og menn mundu síðan senda, til allra, skriflega það sem hver og einn vill leggja til málsins ? Hvernig líst ukkur á það ??

            Þann 18. febúar 2007 verður klúbburinn 4 ára. Ég legg til að við hittumst á Players kl. 20.00  laugardaginn 17. feb svona til að halda upp á þennan dag. Það væri einnig gott að fá hugmyndir frá ykkur hvort við eigum að gera eitthvað annað þarna um kvöldið !

            Fréttabréf;

Nú þegar seinnihlutinn er að detta á leiktíðina og félagsgjöld eiga að hafa verið greidd er rétt að við tökum til í félagaskránni. Það eru mjög margir skráðir félagar sem sumir hafa aldrey greitt eða hafa ekki greitt eitt til tvö ár. Ég legg til að við tökum alla sem ekki hafa greitt tvö eða fleyri ár út af félaga listanum. EN áður en við gerum það væri gott að geta sent öllum fréttabréf þar sem leitað væri eftir því við alla sem skráð hafa sig hvort þeir vilji vera áfram skráðir og hvort þeir muni greiða félagsgjaldið ? 

            Hvað segið þið um þetta kæru stjórnarmenn ?

 

            Miðar á leiki; Ég og Hafsteinn áttum príðis fund úti í Newcastle með konunni sem sér um miðasölu hjá Newcastle UTD. Þar kom fram m.a að klúbburinn úti væri algjörlega hættur að þjónusta klúbba og aðra aðila varðandi miða. Þetta er vegna svartamarkaðs brasks margra á miðum. Það jákvæða er að hún “lofaði” okkur því að útvega 15 miða á tvo heimaleiki Newcastle, annan fyrir áramót og hinn eftir áramót – ár hvert. Þetta er gert í algjöru trausti þess að við / klúbburinn selji miðana til félaga á því verði sem okkur eru seldir á.

            Við eigum að fá 15 miða nú á leik Newcastle gegn Arsenal um páskana. Þá miða seljum við eingöngu til félagsmanna sem greitt hafa félagsgjöld. Eru menn ekki sammála því ?

 

            Að lokum. Stjórnarmenn mættu vera duglegri að skrifa smá pistla sem hægt væri að birta á netinu !! Endilega sendið okkur sem sjáum um heimasíðuna einhverjar greinar, hvatningar eða skammir !!  newcastle@newcastle.is  eða  rikki@hn.is

 

Með bestu kveðju,

Guðmundur R Lúðvíksson, formaður

Newcastle á Íslandi

----------------------------------------------------------------------------------------

12.02. 2007

Svar frá Mikka;

Sælir, ég var í vinnuferð í Danmörku sorry. Ég er til í að hittast ef það er svona

Um 4 því ég era ð fara að blóta helvítis þorranum. HEY til hamingju með sigurinn

Allveg frábært að geta loks hringt í púllara og gortað J

Kv. Mikki

---------------------------------------------------

12.02.2007

Svar frá Jóhanni

Sæll formaður list vel á stroka þá út sem ekki hafa borgað og að aðeins þeir sem eru fullgildir meðlimir geti notfært sér þjónustu klúbbsins,  það er miða og heimasíðu . Varðandi sunnudagskvöldið hef ekki spáð neitt en skal gera það asap
og vera svo í bandi við þig . Kveðja Jóhann Björn
 
----------------------------------------------------
16.02. 2007
 
Svar frá Hafsteini
 
Blessaður Guðmundur.
Hef verið á haus frá því ég kom heim !!!
 
svör við vangaveltum / spurningum.
Mér líst vel á að menn skili áliti og hafi samskipti á netinu frekar en að halda ekki fundi, en tel að persónuleg samskipti séu ávalt betri kostur.
Mun að sjálfsögðu mæta til samfagnaðar á Players á laugadaginn komi ekkert annað uppá.   Það má hins vegar alltaf velta upp hugmynd um hvað á svona afmælishátíð að skila klúbbnum.
Vona að sem flestir sjái sér fært að koma þó að um laugadagskvöld sé að ræða.
Mér líst vel á útgáfu fréttabréfs, því þar má ná til félagsmanna sem ekki eru á netinu alla daga.
Félagsgjöld skila sér hægt. Rétt finnst mér að láta bankann senda út eina aðvörun / ítrekun og gefa því síðan örfára vikur og fara í framhaldinu í útstrikanir.  þ.e. stefna á að félagafaltið verði rétt í upphafi næsta tímabils.s
Ég vara við sölu og of mikillar bjartsýni á leikinn gegn Arsenal. !!!
Hef ekki enn fengið staðfestingu frá þeim úti varðandi miðana.
Ef þeir koma mun ég sjálfur væntanlega taka 3-6 miða fyrir mig og "familíjan"
Annað.
Þakka tækifærið og hvattninguna að fara í útsendingu á Skjá sport, var sérlega gaman af því að leikurinn vannst. þar sem ég var eini aðilinn í öllu húsinu sem hélt með Newcastle.
kv.
Hafsteinn
 
--------------------------------------------------------