Verðlaun og viðurkenningar Newcastle Klúbbsins á Íslandi

Viðurkenningar Newcastle Klúbbsins á Íslandi 2007

Fleyrir myndir >>

Þann 8.april fór 13 manna hópur á leik Newcastle gegn Arsenal á St. James Park. Veittar voru þrjár viðurkenningar til leikmanna Newcastle UTD;

Besti leikmaður ársins; Obafemi Martins - Traustasti leikmaður Newcastle; Stveve Taylor og Besti nýliðinn; Paul Huntington.

Þeir sem veittu viðurkenningarnar voru; Guðmundur R Lúðvíksson, Guðni Guðnasson og Finnur Thordarson:

Viðurkenningar 2007

Á myndinni eru; Finnur, Guðmundur, Martin, Taylor og Guðni.

Ámyndina vantar Paul Huntington þar sem hann gat ekki komið.

8.3.2005

Þrír verðlaunaðir

Fyrir leikinn gegn Liverpool laugardaginn 5. mars veitti sendinefnd frá klúbbnum okkar þremur liðsmönnum Newcastle verðlaun. Alan Shearer fékk viðurkenningu fyrir að vera leikmaður ársins, Darren Ambrose fyrir besta mark ársins en það gerði hann gegn Bolton á Reebok 31. október og Steven Taylor fyrir að vera besti ungi leikmaðurinn á SJP. Hafsteinn Þórðarson fór fyrir þriggja manna sendinefnd og hér má sjá mynd af þessum ágætu köppum við þetta tækifæri.

Kjörið um leikmann ársins og mark ársins fór fram með þeim hætti að félagsmenn kusu á vefnum og þegar menn hittust á leikjum í Ölveri. Stjórnin ákvað hins vegar að verðlauna Steven Taylor fyrir góða frammistöðu enda ekki á hverjum degi sem slíkt efni kemur fram á Tyneside. Myndina tók hirðljósmyndari Newcastle United. Eftirfarandi grein birtist í Evening Chronicle:

Ice time for Toon fans' favourites

Mar 7 2005

By The Evening Chronicle

Newcastle United trio Alan Shearer, Darren Ambrose and Steven Taylor were honoured by the Icelandic branch of the Newcastle United Supporters' Club on Saturday. Skipper Shearer, who has scored 15 goals in all competitions so far this season, was named their Player of the Season. while Ambrose's spectacular strike at Bolton Wanderers earlier in October was the Goal of the Season. And Taylor, who enjoyed a tremendous run in the first team earlier in the campaign, was named their Young Player of the Season.

 

13.4.2004

Viðurkenningar á SJP

Pálmi Jóngeirsson fór fyrir þriggja manna sendinefnd klúbbsins okkar og afhenti viðurkenningar á SJP á sunnudaginn. Tveir ungir Húsvíkingar, þeir Bergur Jónmundsson og Elfar Árni Aðalsteinsson, afhentu viðurkenningarnar ásamt Pálma og hefur þetta eflaust verið ógleymanleg stund fyrir þremenningana. Ekki á hverjum degi sem menn fá að hrista spaðana á hetjunum Shearer, Robert og Sir Bobby. Ljósmyndari Newcastle United var á staðnum og sendi okkur myndir en fjallað verður um atburðinn í næstu leikskrá félagsins. Við hér á newcastle.is urðum hins vegar fyrri til og hér getið þið kíkt á alla þessa ágætu herramenn.

Sir Bobby fékk sérstaka viðurkenningu frá klúbbnum

Alan Shearer er leikmaður ársins hjá íslenskum stuðningsmönnum

Laurent Robert fékk viðurkenningu fyrir fallegasta markið